Blogg Fjólu

Hæ Hæ!

30.07.2007 22:42:23 / fjola

Myspace

Komin með Myspace en ætla að reyna stundum að blogga á þessari síðu.

myspace/fjolabjorg

kv, Fjóla


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 11:08:22 / fjola

Loksins komst ég í tölvu

Hæ! Komst loksins í tölvuna hans Einis bróður míns :D. Mikið búið að vera að gera var til dæmis í vorprófi í píanói en það gekk ekkert æðislega:S. En var í gær í tónheyrnarprófi og ég náði því :haha: var geðveikt glöð.

Er á erftir að fara að spila á litlum tónleikum á píanó og er geðveikt stressuð fyrir því. Þarf líka að læra helling fyrir próf og eikkað, ekki gaman:(.

En hef eigilega ekkert til að skrifa meira um svo við sjáumst bara seinna. Bæjj


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 23:23:22 / fjola

Hæj

hæ!! sorrý að ég hef ekki skrifað lengi. það er út af tölvunni okkar sem virkar ekki eða eitthvað. það er líka búið að vera mikið að gera hjá mér. er búin að taka samræmt próf í náttúrufræði en veit ekki aaalveg hvernig mér gekk. en glöð að vera búin með það!! en ég hef ekkert mikið að segja sko. en en sko mun örugglega ekkert skrifa mikið á næstunni nema að Einir muni leyfa mér að fara í tölvuna sína. en við sjáumst seinna.

kv, Fjóla ;) ;) ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 13:10:03 / fjola

Hæ! Er núna í ensku tíma í skólanum, var búin með einhvað verkefni svo er bara að leika mér í tölvuni. Ekkert mjög mikið búið að gerast var reyndar að keppa á þriðjudaginn það gekk svona alltílagi en María vinkona mín sem var líka að keppa náði að stökkva 1,55 metra í hástökki og komst í afrekshóp unglinga :D.

Er núna eftir skóla að fara í píanó og svo er ég mjög oft á æfingum í frjálsum, mikið að gera. En ekkert meira til að skrifa um svo við sjáumst ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 18:49:46 / fjola

Hæ! Sorry að ég hef ekkert skrifað lengi bara nenni svo sjaldan að blogga og kemst ekki mjög oft í tölvu. En ekkert margt búið að vera að gerast bara það að mamma og pabbi komu í gær frá Ísrael þau voru búin að vera þar í svona tvær vikur og ég og bróðir minn vorum í pössun hjá afa. Það var mjög gott að fá þau heim :D.

Hef ekkert að gera núna, fékk bara aðeins að fara í tölvuna hennar mömmu. Þarf síðan að fara bráðum að læra fyrir próf í samfélagsfræði :( ekki gaman er í leiðilegri bók um stjórnmál eða eitthvað. En veit ekkert um hvað ég get skrifað meira svo við sjáumst!


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 22:52:13 / fjola

Hæ! Ekkert að gera núna, var bara áðan að horfa á einhverja mynd. Það er ekkert mikið búið að vera að gerast hjá mér bara búin að vera að læra í dag og einhvað. Er að fara að taka tvö próf á mánudaginn í stærðfræði og náttúrufræði þarf að læra heila bók sem er 160 blaðsíður fyrir náttúrufræði því er að fara að taka náttúrufræði samræmt próf. Það er svo búið að vera vetrafrí í skólanum síðan á miðvikudaginn það er var mjög gott en er samt bara búin að vara að læra allt fríið fyrir samræmdu. Hef ekkert meira að segja svo bara bæ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 19:53:58 / fjola

Hæ! Það er soldið langt síðan ég skrifaði, mikið búið að vera að gera og svoleiðis. Það er svo bolludagur á morgun erum samt að fara að fá okkur bollur í kvöld. Ég var að setja á þær súkkulaði áðan;)

Pabbi á afmæli í dag svo við fengum egg og beikon í morgunmat það er mjög góður morgunmatur. Var í kirkju í dag, það var fínt. Ég var að hjálpa svo til í barnastarfinu. Þarf svo bráðum að fara að læra fyrir náttúrufræði próf sem er á morgun, það er úr heilli bók sem er um 160 blaðsíður:( þarf að taka það því ég er að fara að taka samræmda prófið í því þótt að ég sé í 9. bekk. Því það má gera það núna og svo má ég líka taka það á næsta ári ef ég vil. En hef ekkert mikið að segja meira svo við sjáumst seinna:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 18:05:17 / fjola

Hæ hæ

Hæ! Er að horfa á handboltan og blogga, Ísland er núna fjórum mörkum yfir þetta er mjög spennandi. En nóg um það, var að keppa í dag á meistaramóti Íslands það gekk ömurlega því er að drepast í bakinu eftir leikfimistíman í gær því við vorum í einhverju magaprófi og ég fékk harðsperrur í bakið af því. Er að fara að keppa síðan í þrístökki á morgun er samt er ég ekkert mjög góð í því en ætla bara að prófa. En nenni ekki að skrifa meira því ég ætla að fara að horfa á handboltan.

Sjáumst;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 20:54:32 / fjola

Hæ. Hef ekkert að gera, ætlaði að fara að horfa á bráðavaktina en hún var ekki:(. Alltaf fullt síðan að gera hjá mér. Er kannski að fara að keppa um helgina í frjálsum aftur, var sko líka að keppa um síðustu helgi það gekk hræðilega en vona að mér muni ganga betur um næstu helgi. Ætla ekkert að hafa þetta langt svo við bara sjáumst;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 23:46:08 / fjola

Hæ! Margt búið að vera að gera, var í prófi í gær og er að fara í stærðfræðipróf á mánudaginn:(. En er að fara að keppa á morgun í frjálsum ætla að keppa í 60 m hlaupi, langstökki og 200 metra hlaupi;).

Var á unglingasamkomu áðan það var bara mjög fínt, er að fara að hugsa um að fara bráðum svo að sofa er orðin soldið þreytt þarf líka góða hvíld fyrir mótið á morgun svo við bara sjáumst:D

P.s. er búin að bæta inn nokkrum myndum af Andrésínu öndinni sem ég átti og einhverju fleiru!


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 21:42:34 / fjola

Hæ! Það er orðið frekar langt síðan ég skrifaði en ég kemst ekkert oft í tölvuna og það er líka orðið mjög mikið að gera.

Ég er búin að fá skáp í skólanum, það er mjög gott þarf nú aldrei að bera þunga tösku á bakinu allan daginn;). En ekkert mikið meira að frétta, svo ég verð bara að skrifa meira næst en það getur verið langt þangað til ég ætla að skrifa en við sjáumst:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 23:11:22 / fjola

Hæ hæ! Ég veit að það er langt síðan ég skrifaði í bloggið, en það er bara búið að vera svo mikið að gera:|. Skólin er byrjaður aftur og líka píanó og svo er ég líka í frjálsum svo það er frekar mikið að gera.

Það er svo loksins komnir skápar í skólan, sko skólastjórinn hefur lofað okkur lengi skápum og loksins komu þeir. Ég ætla að fá mér skáp, mamma vill borga hann fyrir mig;). Við fáum að byrja að nota þá á mánudaginn:D.

En ætla nú að fara, veit ekkert um hvað ég á að skrifa svo við sjáumst og múna að skrifa í gestabókina.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 13:01:07 / fjola

Gleðilegt nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár! Já það er komið nýtt ár mér finnst þetta allt búið að vera svo fljótt að líða, það er bara strax árið 2007 komið. Það var síðan mjög gaman í gær. Við vorum hjá frændfólki okkar það var gaman:D. Við fórum saman á brennuna, það voru mjög margir á henni og hún var geðveikt flott. Síðan þegar við komum heim af brennuni horfðum við öll á áramótaskaupið og fórum svo að sprengja flugelda. Ég fékk einn risa stóran til að sprengja og líka bróðir minn það var gaman. Við vorm síðan hjá frænfólki okkar til kl. hálf tvo og fórum svo heim, ég fór síðan að sofa kl. hálf þrjú og svaf mjög lengi í morgun, og vaknaði um hálf ellefu.

En ætla núna að fara en við sjáumst og Gleðilegt nýtt ár;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 16:00:44 / fjola

Gamlársdagur

Hæ! Það er komin Gamlársdagur og ég hlakka mjög til kvöldsins. Ég og pabbi fórum áðan og keyptum nokkra flugelda, hann keypti til dæmis tvo stóra flugelda og ég má sprengja einn því ég elska að sprengja flugelda:D.

Ég var síðan að bæta inn á síðuna svona spurningar um mig og þið skuluð endilega taka prófið. Viljið þið líka skrifa eitthvað í gestabókina það skrifa ekkert margir sem skrifa í hana:S. En veit ekkert hvað ég get skrifð um meira en skrifa kannski á morgun en ekkert búast við því. Sjáumst!

Gleðilegt nýtt ár;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2006 00:24:45 / fjola

Spurningar um mig!

 


Can you Ace my quiz?
Yes!
No
Let's Find Out!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Leitarbox

Klukkan